Viðskipti erlent Hækkun í Asíu eftir stýrivaxtalækkun vestra Hlutabréf hækkuðu í verði á Asíumörkuðum í morgun í kjölfar stýrivaxtalækkunar bandaríska seðlabankans í gær en vextirnir eru nú núll til 0,25 prósent og hafa ekki verið lægri síðan 1954 eða í rúmlega hálfa öld. Viðskipti erlent 17.12.2008 08:29 Obama: Seðlabankann skortir fleiri tæki eftir stýrivaxtalækkun Seðlabanki Bandaríkjanna ákvað í dag að lækka stýrivexti og verða þeir á bilinu 0 til 0,25%. Þeir hafa aldrei í sögu bankans verið lægri en þeir voru fyrir lækkunina 1%. Fram kom að bankinn hyggst leita allra leiða og ráða til að vinna gegn fjármálakreppunni. Viðskipti erlent 16.12.2008 22:15 Heimsmarkaðsverð á áli ekki lægra í fimm ár Heimsmarkaðsverð á áli er nú 1.435 dollarar á tonnið og hefur verðið ekki verið lægra síðan í október árið 2003. Um mitt þetta ár var tonnið hinsvegar á yfir 3.000 dollara. Viðskipti erlent 16.12.2008 13:48 Símafélagið MNI býðst til að kaupa 31% af hlut Novators í Netia Pólska símafélagið MNI hefur boðist til að kaupa 31,3% hlut Novators í símafélaginu Netia. Þetta segir forstjóri MNI í samtali við CNBC. Viðskipti erlent 16.12.2008 12:52 Evrópsk lyfjafyrirtæki brjóta ekki samkeppnislög Engar vísbendingar eru um að samkeppnislög hafi verið brotin af evrópskum lyfjafyrirtækjum. Þetta kemur skýrt fram í skýrslu framkvæmdastjórnar Evrópusambandsins, sem nýverið var gefin út í kjölfar húsleitar og rannsóknar á samkeppnisumhverfi evrópskra lyfjafyrirtækja fyrr á þessu ári. Viðskipti erlent 16.12.2008 10:55 Rauð byrjun í kauphöllinni Kauphöllin opnaði í morgun með rauðum tölum. Viðskiptin voru aðeins fjögur í byrjun og upphæð þeirra tæpar 20 milljónir kr.. Viðskipti erlent 16.12.2008 10:23 Fjöldi af breskum krám er á barmi gjaldþrots Mikil fjöldi af breskum krám, eða pöbbum, rambar nú á barmi gjaldþrots eða eru þegar orðnar gjaldþrota vegna fjármálakreppunnar. Nú síðast varð kráarkeðjan Orchid lýst gjaldþrota en hún er sú fimmta stærsta á Bretlandseyjum. Viðskipti erlent 16.12.2008 10:09 Geir segir stjórnvöld vera að skoða aðgerðir FME í Bretlandi Geir Haarde forsætisráðherra segir í samtali við BBC að íslensk stjórnvöld séu að skoða hvort aðgerðir breska fjármálaeftirlitins hafi leitt til þess að Singer & Friedlander banki Kaupþings hafi fallið. Viðskipti erlent 16.12.2008 09:38 Lækkanir áberandi hjá námu- og málmfyrirtækjum Hlutabréf á Asíumörkuðum lækkuðu í morgun og voru lækkanir hjá námu- og málmvinnslufyrirtækjum áberandi. Til dæmis lækkuðu bréf japanska stálrisans JFE um tæp sex prósentustig, námufyrirtækið Billington lækkaði einnig og kolaframleiðandinn Macarthur lækkaði um heil 22 prósentustig. Viðskipti erlent 16.12.2008 08:34 Salan á hótel D’Angleterre fyrir rétt í Kaupmannahöfn Í dag hefjast réttarhöld í Kaupmannahöfn vegna sölunnar á hótel D’Angleterre, og fleiri eignum, til Nordic Partners sem er í eigu Íslendinga. Það er fasteignasali sem stefnt hefur fyrri eigendum D’Angleterre, Remmen fjölskyldunni. Telur fasteignasalinn sig eiga inni söluþóknun hjá fjölskyldunni. Viðskipti erlent 16.12.2008 08:30 Beðið eftir stýrivaxtalækkun vestanhafs Gengi hlutabréfa lækkaði almennt í dag. Helsta skýringin á því er eftirskjálfti af völdum handtöku Bernands Madoffs, sem var handtekinn í síðustu viku vegna fjármálasvindls. Þá vofir enn yfir hugsanlega slæm tíðindi af bílaiðnaðinum í Bandaríkjunum eftir að bandaríkjaþing hafnaði forsvarsmönnum bílarisanna þriggja um neyðarlán sem myndi ýta þeim yfir erfiðasta hjallan framhjá hugsanlegu gjaldþroti. Viðskipti erlent 15.12.2008 21:49 Heimsmarkaðsverð á olíu skríður yfir 50 dollara tunnan Heimsmarkaðsverð á olíu skreið yfir 50 dollara á tunnuna í dag. Þetta kom í framhaldi af yfirlýsingu frá Chakib Khelil forsta OPEC, samtaka olíuframleiðsluríkja, um að Saudi-arabar hefðu þegar dregið úr framleiðslu sinni. Viðskipti erlent 15.12.2008 15:26 Skip Atlantic Petroleum fær vopnaða vernd á Aden-flóanum Atlantic Petroleum hefur fengið afhent olíuframleiðslu-og geymsluskipið Aoka Mizu frá skipasmíðastöð í Singapore. Ætlunin er að flytja það frá Singapore til Rotterdam á næstunni. Leið skipsins mun liggja um Aden-flóann og segir Wilhelm Petersen forstjóri Atlantic að á þeirri leið muni skipið fá vopnaða vernd. Viðskipti erlent 15.12.2008 13:21 Spáir 17,8% verðbólgu í desember Að mati greiningar Glitnis mun vísitala neysluverðs (VNV) hækka um 1,2% í desember. Gangi spáin eftir mun ársverðbólga aukast úr 17,2% í 17,8%. Viðskipti erlent 15.12.2008 11:24 Hitnar í kolunum hjá Carnegie, forstjórinn hættir Anders Fällman forstjóri móðurfélags Carnegie bankans hefur látið af störfum. Þessa ákvörðun tók hann eftir að Bo Lundgren forstjóri Lánastofnunnar sænska ríkisins (Riksgälden) hraunaði yfir hann í sjónvarpsviðtali fyrir helgina. Milestone á hlut í Carnegie í gegnum félag sitt Moderna Finans. Viðskipti erlent 15.12.2008 09:37 Dönsk klámstöð sektuð fyrir að nota nafnið Tívolí Dönsk klámstöð hefur komist að því sér til töluverðrar hrellingar og fjárútláta að nafnið Tívolí er verndað vörumerki í Danmörku. Stöðin var dæmd til að borga 6 miljónir kr. í skaðabætur og eina milljón í sekt sökum þessa fyrir Sjó- og Kauprétti Kaupmannahafnar. Viðskipti erlent 15.12.2008 09:08 Hlutabréf hækkuðu í Asíu Hlutabréf hækkuðu í verði á Asíumörkuðum í morgun eftir að trú manna jókst á að bandarísk yfirvöld muni koma bílaframleiðendunum Chrysler og General Motors til aðstoðar en þau ramba á barmi gjaldþrots. Viðskipti erlent 15.12.2008 08:09 Enn einn þýskur banki tapar stórt á íslenska bankahruninu Þýski bankinn HSH Nordbank bætist nú í hóp banka þar í landi sem tapa stórt á hruni íslensku bankanna. Samkvæmt þýska blaðinu Focus mun bankinn tapa um einum milljarði evra á árinu eða um 157 milljörðum kr. en fleiri en íslensku bankarnir eiga þar hlut að máli. Viðskipti erlent 15.12.2008 08:09 Enn óvíst um lán til bandarísku bílaframleiðandanna Enn hafa bandarísk stjórnvöld ekki tekið neinar ákvarðanir um lán til handa stærstu bílaframleiðendunum þar í landi. Þeir eiga allir við mikla erfiðleika að etja vegna fjármálakreppunnar. Ekki er búist við því að niðurstaða náist í málið á morgun, enda er Bush Bandaríkjaforseti í heimsókn í Írak. Viðskipti erlent 14.12.2008 21:30 Kína, Japan og Suður-Kórea í samstarf gegn kreppunni Japanar, Kínverjar og Suður-Kóreumenn hafa lagt til hliðar áratuga óvináttu og gert samkomulag um að berjast sameiginlega gegn kreppunni sem hrjáir efnahag þeirra. Öll löndin þrjú hafa búið við velsæld og vöxt undanfarin ár en nú stefnir í sama vanda og mörg önnur iðnríki eiga við að glíma. Fréttaskýrendur búast við að samstarf þeirra verði nánara en ríkja Evrópusambandið þar sem hver þjóð hugsar fyrst og fremst um sjálfa sig. Viðskipti erlent 14.12.2008 10:18 Hlutabréf hækkuðu í Bandaríkjunum Helstu hlutabréfavísitölur í Bandaríkjunum hækkuðu lítillega í dag vegna væntinga til þess að björgunaraðgerðir í þágu bandarískra bílaframleiðanda nái fram að ganga og bjartra vona í garð tæknifyrirtækja í Bandaríkjunum. Dow Jones hækkaði um 0,75%, Standard & Poor hækkaði um 0,7% og Nasdaq hækkaði um 2,18%. Viðskipti erlent 12.12.2008 22:11 Landsbankinn í Luxemborg tekinn til gjaldþrotaskipta Dómstóll í Luxemborg hefur fyrirskipað að Landsbankinn þar í landi verði tekinn til gjaldþrotaskipta. Jafnframt hafa tveir skiptastjórar verið skipaðir til að fara með mál þrotabúsins. Viðskipti erlent 12.12.2008 16:19 Markaður með einkaþotur er hruninn Hundruð einstaklinga og félaga vilja selja einkaþotur sínar en hvergi er hægt að finna kaupenda að þeim í augnablikinu. Markaðurinn með einkaþotur r algerlega hruninn. Viðskipti erlent 12.12.2008 14:30 Hlutir í JJB Sports hrynja eftir nýtt verðmat Citigroup Hlutabréf í JJB Sports hafa hrunið um rúmlega 30% á markaðinum í London í dag eftir að Citigroup gafa út nýtt verðmat á félaginu. Citigroup telur hlutinn nú aðeins 1 pens virði. Exista er meðal eigenda JJB Sports. Viðskipti erlent 12.12.2008 14:04 Niðurskurður Rio Tinto kemur ekki við kaunin í Straumsvík Hin umfangsmikli niðurskuður hjá Rio Tinto mun ekki hafa bein áhrif á starfsemi álversins í Straumsvík. Ólafur Teitur Guðnason fjölmiðlafulltrúi álversins segir að þeir muni þurfa að hagræða í rekstri sínum eins og kostur er eftir sem áður. Viðskipti erlent 12.12.2008 13:05 Stjórnvöld samþykkja sölu Kaupþings í Svíþjóð Búið er að ráða Christer Villard sem forstjóra Kaupþings í Svíþjóð og hefur honum jafnframt verið falið að selja bankann. Samkvæmt frétt á Dagens Industri hafa íslensk stjórnvöld gefið grænt ljós á söluna. Viðskipti erlent 12.12.2008 12:23 Rauð jól á flestum hlutabréfamörkuðum Rauður jólalitur hefur einkennt hlutabréfamarkaði um gervalla heimsbyggðina eftir að bandarískir öldungadeildarþingmenn felldu tillögu um að veita bandarískum bílaframleiðendum neyðarlán til að koma þeim yfir erfiðan hjalla og forða þeim frá því að keyra í þrot. Viðskipti erlent 12.12.2008 09:49 Kaliforníubúar óttast nú íslensk örlög Kaliforníubúar óttast nú að lenda í sömu örlögum og Íslands hvað efnahag ríkisins varðar. Kalifornía er tíunda stærsta hagkerfi heimsins en í febrúar mun ríkið verða uppiskroppa með fé að öllu óbreyttu og þar með sé ríkið komið í "efnahagslegan heimsenda" eða financial Armageddon" eins og það er orðað. Viðskipti erlent 12.12.2008 09:43 Kreppan knýr dyra hjá Rússum Aðstoðarfjármálaráðherra Rússlands segir að landið sé nú í kreppu og bætist landið þar með í hóp fjölda annarra sem svipað er ástatt fyrir. Viðskipti erlent 12.12.2008 09:39 Hlutabréf í Asíu snarlækka Hlutabréf snarlækkuðu í verði á Asíumörkuðum í morgun eftir að fregnir bárust af því að ekkert yrði af aðstoð við bandarísku bílaframleiðendurna. Viðskipti erlent 12.12.2008 08:21 « ‹ 331 332 333 334 ›
Hækkun í Asíu eftir stýrivaxtalækkun vestra Hlutabréf hækkuðu í verði á Asíumörkuðum í morgun í kjölfar stýrivaxtalækkunar bandaríska seðlabankans í gær en vextirnir eru nú núll til 0,25 prósent og hafa ekki verið lægri síðan 1954 eða í rúmlega hálfa öld. Viðskipti erlent 17.12.2008 08:29
Obama: Seðlabankann skortir fleiri tæki eftir stýrivaxtalækkun Seðlabanki Bandaríkjanna ákvað í dag að lækka stýrivexti og verða þeir á bilinu 0 til 0,25%. Þeir hafa aldrei í sögu bankans verið lægri en þeir voru fyrir lækkunina 1%. Fram kom að bankinn hyggst leita allra leiða og ráða til að vinna gegn fjármálakreppunni. Viðskipti erlent 16.12.2008 22:15
Heimsmarkaðsverð á áli ekki lægra í fimm ár Heimsmarkaðsverð á áli er nú 1.435 dollarar á tonnið og hefur verðið ekki verið lægra síðan í október árið 2003. Um mitt þetta ár var tonnið hinsvegar á yfir 3.000 dollara. Viðskipti erlent 16.12.2008 13:48
Símafélagið MNI býðst til að kaupa 31% af hlut Novators í Netia Pólska símafélagið MNI hefur boðist til að kaupa 31,3% hlut Novators í símafélaginu Netia. Þetta segir forstjóri MNI í samtali við CNBC. Viðskipti erlent 16.12.2008 12:52
Evrópsk lyfjafyrirtæki brjóta ekki samkeppnislög Engar vísbendingar eru um að samkeppnislög hafi verið brotin af evrópskum lyfjafyrirtækjum. Þetta kemur skýrt fram í skýrslu framkvæmdastjórnar Evrópusambandsins, sem nýverið var gefin út í kjölfar húsleitar og rannsóknar á samkeppnisumhverfi evrópskra lyfjafyrirtækja fyrr á þessu ári. Viðskipti erlent 16.12.2008 10:55
Rauð byrjun í kauphöllinni Kauphöllin opnaði í morgun með rauðum tölum. Viðskiptin voru aðeins fjögur í byrjun og upphæð þeirra tæpar 20 milljónir kr.. Viðskipti erlent 16.12.2008 10:23
Fjöldi af breskum krám er á barmi gjaldþrots Mikil fjöldi af breskum krám, eða pöbbum, rambar nú á barmi gjaldþrots eða eru þegar orðnar gjaldþrota vegna fjármálakreppunnar. Nú síðast varð kráarkeðjan Orchid lýst gjaldþrota en hún er sú fimmta stærsta á Bretlandseyjum. Viðskipti erlent 16.12.2008 10:09
Geir segir stjórnvöld vera að skoða aðgerðir FME í Bretlandi Geir Haarde forsætisráðherra segir í samtali við BBC að íslensk stjórnvöld séu að skoða hvort aðgerðir breska fjármálaeftirlitins hafi leitt til þess að Singer & Friedlander banki Kaupþings hafi fallið. Viðskipti erlent 16.12.2008 09:38
Lækkanir áberandi hjá námu- og málmfyrirtækjum Hlutabréf á Asíumörkuðum lækkuðu í morgun og voru lækkanir hjá námu- og málmvinnslufyrirtækjum áberandi. Til dæmis lækkuðu bréf japanska stálrisans JFE um tæp sex prósentustig, námufyrirtækið Billington lækkaði einnig og kolaframleiðandinn Macarthur lækkaði um heil 22 prósentustig. Viðskipti erlent 16.12.2008 08:34
Salan á hótel D’Angleterre fyrir rétt í Kaupmannahöfn Í dag hefjast réttarhöld í Kaupmannahöfn vegna sölunnar á hótel D’Angleterre, og fleiri eignum, til Nordic Partners sem er í eigu Íslendinga. Það er fasteignasali sem stefnt hefur fyrri eigendum D’Angleterre, Remmen fjölskyldunni. Telur fasteignasalinn sig eiga inni söluþóknun hjá fjölskyldunni. Viðskipti erlent 16.12.2008 08:30
Beðið eftir stýrivaxtalækkun vestanhafs Gengi hlutabréfa lækkaði almennt í dag. Helsta skýringin á því er eftirskjálfti af völdum handtöku Bernands Madoffs, sem var handtekinn í síðustu viku vegna fjármálasvindls. Þá vofir enn yfir hugsanlega slæm tíðindi af bílaiðnaðinum í Bandaríkjunum eftir að bandaríkjaþing hafnaði forsvarsmönnum bílarisanna þriggja um neyðarlán sem myndi ýta þeim yfir erfiðasta hjallan framhjá hugsanlegu gjaldþroti. Viðskipti erlent 15.12.2008 21:49
Heimsmarkaðsverð á olíu skríður yfir 50 dollara tunnan Heimsmarkaðsverð á olíu skreið yfir 50 dollara á tunnuna í dag. Þetta kom í framhaldi af yfirlýsingu frá Chakib Khelil forsta OPEC, samtaka olíuframleiðsluríkja, um að Saudi-arabar hefðu þegar dregið úr framleiðslu sinni. Viðskipti erlent 15.12.2008 15:26
Skip Atlantic Petroleum fær vopnaða vernd á Aden-flóanum Atlantic Petroleum hefur fengið afhent olíuframleiðslu-og geymsluskipið Aoka Mizu frá skipasmíðastöð í Singapore. Ætlunin er að flytja það frá Singapore til Rotterdam á næstunni. Leið skipsins mun liggja um Aden-flóann og segir Wilhelm Petersen forstjóri Atlantic að á þeirri leið muni skipið fá vopnaða vernd. Viðskipti erlent 15.12.2008 13:21
Spáir 17,8% verðbólgu í desember Að mati greiningar Glitnis mun vísitala neysluverðs (VNV) hækka um 1,2% í desember. Gangi spáin eftir mun ársverðbólga aukast úr 17,2% í 17,8%. Viðskipti erlent 15.12.2008 11:24
Hitnar í kolunum hjá Carnegie, forstjórinn hættir Anders Fällman forstjóri móðurfélags Carnegie bankans hefur látið af störfum. Þessa ákvörðun tók hann eftir að Bo Lundgren forstjóri Lánastofnunnar sænska ríkisins (Riksgälden) hraunaði yfir hann í sjónvarpsviðtali fyrir helgina. Milestone á hlut í Carnegie í gegnum félag sitt Moderna Finans. Viðskipti erlent 15.12.2008 09:37
Dönsk klámstöð sektuð fyrir að nota nafnið Tívolí Dönsk klámstöð hefur komist að því sér til töluverðrar hrellingar og fjárútláta að nafnið Tívolí er verndað vörumerki í Danmörku. Stöðin var dæmd til að borga 6 miljónir kr. í skaðabætur og eina milljón í sekt sökum þessa fyrir Sjó- og Kauprétti Kaupmannahafnar. Viðskipti erlent 15.12.2008 09:08
Hlutabréf hækkuðu í Asíu Hlutabréf hækkuðu í verði á Asíumörkuðum í morgun eftir að trú manna jókst á að bandarísk yfirvöld muni koma bílaframleiðendunum Chrysler og General Motors til aðstoðar en þau ramba á barmi gjaldþrots. Viðskipti erlent 15.12.2008 08:09
Enn einn þýskur banki tapar stórt á íslenska bankahruninu Þýski bankinn HSH Nordbank bætist nú í hóp banka þar í landi sem tapa stórt á hruni íslensku bankanna. Samkvæmt þýska blaðinu Focus mun bankinn tapa um einum milljarði evra á árinu eða um 157 milljörðum kr. en fleiri en íslensku bankarnir eiga þar hlut að máli. Viðskipti erlent 15.12.2008 08:09
Enn óvíst um lán til bandarísku bílaframleiðandanna Enn hafa bandarísk stjórnvöld ekki tekið neinar ákvarðanir um lán til handa stærstu bílaframleiðendunum þar í landi. Þeir eiga allir við mikla erfiðleika að etja vegna fjármálakreppunnar. Ekki er búist við því að niðurstaða náist í málið á morgun, enda er Bush Bandaríkjaforseti í heimsókn í Írak. Viðskipti erlent 14.12.2008 21:30
Kína, Japan og Suður-Kórea í samstarf gegn kreppunni Japanar, Kínverjar og Suður-Kóreumenn hafa lagt til hliðar áratuga óvináttu og gert samkomulag um að berjast sameiginlega gegn kreppunni sem hrjáir efnahag þeirra. Öll löndin þrjú hafa búið við velsæld og vöxt undanfarin ár en nú stefnir í sama vanda og mörg önnur iðnríki eiga við að glíma. Fréttaskýrendur búast við að samstarf þeirra verði nánara en ríkja Evrópusambandið þar sem hver þjóð hugsar fyrst og fremst um sjálfa sig. Viðskipti erlent 14.12.2008 10:18
Hlutabréf hækkuðu í Bandaríkjunum Helstu hlutabréfavísitölur í Bandaríkjunum hækkuðu lítillega í dag vegna væntinga til þess að björgunaraðgerðir í þágu bandarískra bílaframleiðanda nái fram að ganga og bjartra vona í garð tæknifyrirtækja í Bandaríkjunum. Dow Jones hækkaði um 0,75%, Standard & Poor hækkaði um 0,7% og Nasdaq hækkaði um 2,18%. Viðskipti erlent 12.12.2008 22:11
Landsbankinn í Luxemborg tekinn til gjaldþrotaskipta Dómstóll í Luxemborg hefur fyrirskipað að Landsbankinn þar í landi verði tekinn til gjaldþrotaskipta. Jafnframt hafa tveir skiptastjórar verið skipaðir til að fara með mál þrotabúsins. Viðskipti erlent 12.12.2008 16:19
Markaður með einkaþotur er hruninn Hundruð einstaklinga og félaga vilja selja einkaþotur sínar en hvergi er hægt að finna kaupenda að þeim í augnablikinu. Markaðurinn með einkaþotur r algerlega hruninn. Viðskipti erlent 12.12.2008 14:30
Hlutir í JJB Sports hrynja eftir nýtt verðmat Citigroup Hlutabréf í JJB Sports hafa hrunið um rúmlega 30% á markaðinum í London í dag eftir að Citigroup gafa út nýtt verðmat á félaginu. Citigroup telur hlutinn nú aðeins 1 pens virði. Exista er meðal eigenda JJB Sports. Viðskipti erlent 12.12.2008 14:04
Niðurskurður Rio Tinto kemur ekki við kaunin í Straumsvík Hin umfangsmikli niðurskuður hjá Rio Tinto mun ekki hafa bein áhrif á starfsemi álversins í Straumsvík. Ólafur Teitur Guðnason fjölmiðlafulltrúi álversins segir að þeir muni þurfa að hagræða í rekstri sínum eins og kostur er eftir sem áður. Viðskipti erlent 12.12.2008 13:05
Stjórnvöld samþykkja sölu Kaupþings í Svíþjóð Búið er að ráða Christer Villard sem forstjóra Kaupþings í Svíþjóð og hefur honum jafnframt verið falið að selja bankann. Samkvæmt frétt á Dagens Industri hafa íslensk stjórnvöld gefið grænt ljós á söluna. Viðskipti erlent 12.12.2008 12:23
Rauð jól á flestum hlutabréfamörkuðum Rauður jólalitur hefur einkennt hlutabréfamarkaði um gervalla heimsbyggðina eftir að bandarískir öldungadeildarþingmenn felldu tillögu um að veita bandarískum bílaframleiðendum neyðarlán til að koma þeim yfir erfiðan hjalla og forða þeim frá því að keyra í þrot. Viðskipti erlent 12.12.2008 09:49
Kaliforníubúar óttast nú íslensk örlög Kaliforníubúar óttast nú að lenda í sömu örlögum og Íslands hvað efnahag ríkisins varðar. Kalifornía er tíunda stærsta hagkerfi heimsins en í febrúar mun ríkið verða uppiskroppa með fé að öllu óbreyttu og þar með sé ríkið komið í "efnahagslegan heimsenda" eða financial Armageddon" eins og það er orðað. Viðskipti erlent 12.12.2008 09:43
Kreppan knýr dyra hjá Rússum Aðstoðarfjármálaráðherra Rússlands segir að landið sé nú í kreppu og bætist landið þar með í hóp fjölda annarra sem svipað er ástatt fyrir. Viðskipti erlent 12.12.2008 09:39
Hlutabréf í Asíu snarlækka Hlutabréf snarlækkuðu í verði á Asíumörkuðum í morgun eftir að fregnir bárust af því að ekkert yrði af aðstoð við bandarísku bílaframleiðendurna. Viðskipti erlent 12.12.2008 08:21