Innlent

Skipar starfshóp vegna stækkunar friðlands Þjórsárvera

Frá Þjórsárverum.
Frá Þjórsárverum. MYND/E.Ól

Jónína Bjartmarz umhverfisráðherra skipaði í dag starfshóp til að fara yfir og kanna möguleika á stækkun friðlands í Þjórsárverum og endurskoða núverandi mörk friðlandsins og friðlýsingarskilmála. Þetta kemur fram á vef umhverfisráðuneytisins.

Þar segir enn fremur að í skipunarbréfi nefndarinnar komi fram að framkvæmdir í nágrenni núverandi friðlands og við jaðra þess frá því að friðlýsing var ákveðin árið 1979 hafi vakið upp spurningar um æskilegar breytingar á mörkum þess. Starfshópnum sé því falið að fara yfir málefni friðlandsins, meta stöðuna og ræða við sérfræðinga og hagsmunaaðila á svæðinu og gera tillögur um stækkun friðlandsins svo og hugsanlegar breytingar á mörkum friðlandsins og einstökum atriðum friðlýsingarinnar. Þess er óskað að starfshópurinn skili tillögum til ráðherra fyrir 1. febrúar 2007.

Starfshópinn skipa Árni Bragason, sem er formaður, Egill Sigurðsson, tilnefndur af Ásahreppi, Þorgils Torfi Jónsson, tilnefndur af Rangárþingi ytra og Gunnar Örn Marteinsson, tilnefndur af Skeiða- og Gnúpverjahreppi.

„Þjórsárver eru meðal helstu náttúrugersema á Íslandi og hafa mikið verndargildi í alþjóðlegu samhengi. Svæðið er víðáttumesta gróðurvin miðhálendisins auk þess sem þar er að finna mestu varpstöðvar heiðargæsarinnar í heimi. Hluti Þjórsárvera hefur verið friðlýstur frá 1981 og verin hafa verið á skrá Ramsar-samþykktarinnar frá 1990, eitt þriggja slíkra svæða hér á landi. Markmið Ramsar-samþykktarinnar er að stuðla að verndun og skynsamlegri nýtingu votlendissvæða í heiminum, sérstaklega sem lífsvæði fyrir votlendisfugla. Umhverfisráðherra hefur lýst þeirri skoðun sinni að stækka beri friðlandið og láta af frekari orkunýtingaráformum á svæðinu," segir á vef umhverfisráðuneytisins.



Athugið. Vísir hvetur lesendur til að skiptast á skoðunum. Allar athugasemdir eru á ábyrgð þeirra er þær rita. Lesendur skulu halda sig við málefnalega og hófstillta umræðu og áskilur Vísir sér rétt til að fjarlægja ummæli og/eða umræðu sem fer út fyrir þau mörk. Vísir mun loka á aðgang þeirra sem tjá sig ekki undir eigin nafni eða gerast ítrekað brotlegir við ofangreindar umgengnisreglur.

Fleiri fréttir

Sjá meira


×