Fjárlaganefnd vill setja Öryggismálanefnd í gang 22. nóvember 2006 15:40
Meirihluti fjárlaganefndar Alþingis vill að Öryggismálanefnd, samstarfsvettvangur allra stjórnmálaflokkanna verði sett á laggirnar á vegum forsætisráðuneytisins. Meirihluti fjárlaganefndar leggur til að framlagið til þessarar nýju Öryggismálanefndar verði 16 milljónir króna árið 2007. Í álitinu sínu vísar meirihlutinn til yfirlýsingar ríkisstjórnarinnar frá 26. september um ný verkefni íslenskra stjórnvalda við brottför varnarliðsins. Meirihlutaálitið gerir ráð fyrir að útgjöld ríkisins hækki um 9,6 milljarða króna miðað við frumvarp Árna Mathiesen, fjármálaráðherra og að tekjuhliðin hækki um þrjá miljarða. Meðal hækkana sem lagðar eru til í meirihlutaálitinu eru eins miljarðs króna hækkun til að styrkja rekstargrunn Landsspítala Háskólasjúkrahúss, sem er til viðbótar þeim milljarði sem rætt var um í tengslum við fjáraukalög fyrir árið 2006. Þá er lagt til 300 milljóna króna hækkun á framlögum til Háskóla Íslands í samræmi við ákvæði nýs kennslu- og rannsóknasamnings sem fyrirhugað er að gera við skólann. Þá er líka gerð tillaga um 70 m.kr. hækkun fjárveitingar til rannsókna hjá Háskólanum á Akureyri, 140,9 m.kr. hækkun á framlagi til Sinfóníuhljómsveitarinnar, og 123 milljón króna hækkun á fjárveitingu í kvikmyndasjóð vegna endurnýjunar á samkomulagi sem menntamála- og fjármálaráðherra gera við samtök í íslenskri kvikmyndagerð. Þá leggur meirihluti fjárlaganefndar til 280 milljóna króna tímabundið framlag til umsjónar fyrrum varnarsvæðis. Kostnaðurinn felst m.a. í umsýslu, viðhaldi, öryggisgæslu, umhirðu og öðrum húsnæðiskostnaði. Stofnað hefur verið þróunarfélag sem mun halda utan um rekstur svæðisins. Er fjárveitingunni einnig ætlað að standa undir kostnaði við þróun og umbreytingu á svæðinu. Fjárveitingin verður lækkuð þegar fasteignir á svæðinu verða settar í sjálfbær borgaraleg not.
Alþingi Athugið. Vísir hvetur lesendur til að skiptast á skoðunum. Allar athugasemdir eru á ábyrgð þeirra er þær rita. Lesendur skulu halda sig við málefnalega og hófstillta umræðu og áskilur Vísir sér rétt til að fjarlægja ummæli og/eða umræðu sem fer út fyrir þau mörk. Vísir mun loka á aðgang þeirra sem tjá sig ekki undir eigin nafni eða gerast ítrekað brotlegir við ofangreindar umgengnisreglur. Mest lesið Mikill viðbúnaður vegna bráðra veikinda Innlent Ráðherrar hafi verið ítrekað varaðir við gjöf Haraldar Innlent Sat saklaus í unglingafangelsi í tvö ár Innlent Íransforseti fórst í þyrluslysinu Erlent „Ég stóð bara með sóttvarnalækni“ Innlent Saksóknari Alþjóðlega sakamáladómstólsins vill handtaka Netanjahú og Hamas-liða Erlent Forsetavaktin 2024: Hver verður sjöundi forseti lýðveldisins? Innlent Erfitt að ímynda sér meiri harðlínumann en Raisi Innlent Fimm stríðsþristar á leiðinni til landsins Innlent Handtökuskipun á hendur forsætisráðherra og kjaradeila Innlent Fleiri fréttir Gæsluvarðhald yfir Davíð Viðarssyni framlengt 80 til 120 herskip lágu í Hvalfirði Fyrsti stríðsþristurinn lentur Öryggisráð Sameinuðu þjóðanna sé vanhæft til að takast á við aðstæðurnar Handtökuskipun á hendur forsætisráðherra og kjaradeila Séra Eva Björk ráðin biskupsritari Fimm stríðsþristar á leiðinni til landsins Samningur BÍ í höfn í Karphúsinu Ráðherrar hafi verið ítrekað varaðir við gjöf Haraldar Sungið og sungið á Sauðárkróki „Ég stóð bara með sóttvarnalækni“ Mikill viðbúnaður vegna bráðra veikinda Ósk um handtökuheimild og deilur um Erfðagreiningu Erfitt að ímynda sér meiri harðlínumann en Raisi Sat saklaus í unglingafangelsi í tvö ár Frambjóðendur geti nýtt sér skoðanakannanir Glæsilegt fuglasafn í veiðihúsinu við Hítará Varasamt að ferðast á sumardekkjum í kvöld Óttast um afdrif Íransforseta og ferðaveðrið í beinni Stuðningur Katrínar við sóttvarnarlækni sjálfsagður „Fólk er bara að bíða“ Tveir prestar og tveir djáknar vígðir í Skálholti Lægð yfir landinu og snjókoma fyrir norðan Áfall þegar samskipti Katrínar og Kára voru birt Aukin skjálftavirkni og erjur um Erfðagreiningu Örlítil aukning í skjálftavirkni undir Svartsengi Forsetakosningar, mansal og samningar Reykjavíkur við olíufélögin Segir Helgu fara með rangt mál Þekkir dæmi um endalaus uppköst og garnalömun vegna lyfjanna Konurnar hafi gert allt til að setja ekki svartan blett á starfsemina Sjá meira
Saksóknari Alþjóðlega sakamáladómstólsins vill handtaka Netanjahú og Hamas-liða Erlent
Saksóknari Alþjóðlega sakamáladómstólsins vill handtaka Netanjahú og Hamas-liða Erlent