Tónlist

Vinna með Brian Eno

Chris Martin og félagar vinna með Brian Eno að næstu plötu sinni.
Chris Martin og félagar vinna með Brian Eno að næstu plötu sinni.

Breska hljómsveitin Coldplay nýtur liðsinnis Brians Eno á næstu plötu sinni. Upptökustjórinn Eno er þekktastur fyrir að vinna með U2, Roxy Music og David Bowie og hyggst hann bæta enn einni rósinni í hnappagat sitt með því að vinna með risunum í Coldplay.

„Ef maður getur talið Brian Eno á að vinna með sér hlýtur maður að vera að gera góða hluti,“ segir gítarleikarinn Jonny Buckland um samstarfið. Söngvarinn Chris Martin vildi hins vegar fátt segja, enda þykir einsýnt að yfirlýsingar frá honum geti haft áhrif á gengi hlutabréfa í plötufyrirtækinu EMI. „Það er aðeins of snemmt að tala um þetta,“ sagði Martin.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×