Enski boltinn

Fé­laga­skipta­glugginn lokaður hjá United nema fé­lagið nái að selja

Smári Jökull Jónsson skrifar
Maguire ætlar sér að vera áfram hjá Manchester United og Scott McTominay sömuleiðis.
Maguire ætlar sér að vera áfram hjá Manchester United og Scott McTominay sömuleiðis. Vísir/Getty

Ólíklegt er talið að Manchester United kaupi fleiri leikmenn áður en félagaskiptaglugginn lokar um mánaðamótin. Félaginu hefur enn ekki tekist að selja þá Harry Maguire og Scott McTominay til að fjármagna frekari kaup.

Manchester United hefur styrkt lið sitt með þremur nýjum leikmönnum fyrir tímabilið sem framundan er í vetur. Mason Mount kom til liðsins frá Chelsea, Andre Onana frá Inter og Rasmus Hojlund frá Atalanta.

Nú greinir Skysports hins vegar frá því að ólíklegt sé að félagið kaupi fleiri leikmenn. United hefur ekki tekist að selja þá Harry Maguire og Scott McTominay en það er talið nauðsynlegt til að afla fjár til frekari kaupa.

United hafði samþykkt tilboð West Ham í Maguire en enski landsliðsmaðurinn vill berjast fyrir sæti sínu í liði Erik ten Hag. Þá er einnig talið ólíklegt að McTominay yfirgefi United áður en félagaskiptaglugginn lokar.

Félagið hefur verið orðað við frekari kaup á síðustu dögum og helst hafa þeir Benjamin Pavard, leikmaður Bayern Munchen, og Sofyan Amrabat, leikmaður Fiorentina, verið nefndir til sögunnar.

„Bara vegna þess að þetta sé ekki að gerast núna þá er Manchester United enn áhugasamt um þessa leikmenn. Ef einhverjir stórar sölur ganga í gegn þá er það okkar skilningur að þeir geti samið um kaup á allavega öðrum þessara leikmanna,“ sagði Dharmesh Sheth í þættinum Transfer Show á Skysports.

„Því lengra sem líður á félagaskiptagluggann þá verður erfiðara að klára þessa samninga. Það tekur tíma að ganga frá stórum samningum. Áhuginn er til staðar, þeir vilja ná í miðvörð og miðjumann. En það þurfa leikmenn að yfirgefa félagið til að búa til pláss í hópnum og fá inn pening.“




Fleiri fréttir

Sjá meira


×