Sport

„Pældu í því hvað þú gætir keypt mikið kókaín, dóp­istinn þinn“

Smári Jökull Jónsson skrifar
Logan Paul og Conor McGregor leiðis ekki að komast á forsíður fjölmiðlanna.
Logan Paul og Conor McGregor leiðis ekki að komast á forsíður fjölmiðlanna. Vísir/Getty

Logan Paul hefur brugðist við orðum Conor McGregor um bardaga Paul gegn Dillon Danis í október. Paul segist vera tilbúinn að veðja milljón dollurum á eigin sigur í bardaganum.

Youtube-stjarnan Logan Paul hefur keppt í fjölbragðaglímu síðustu misserin en er á leið í hnefaleikahringinn innan skamms þar sem hann mun keppa í hnefaleikum í fyrsta sinn í um tvö ár.

Mótherji hans í hringnum verður Dillon Danis en hann er líklega þekktari fyrir að vera æfingafélagi Conor McGregor heldur en fyrir afrek sín í íþróttinni. Á dögunum tjáði McGregor sig um bardagann sem fer fram þann 14. október.

„Ég hef þekkt Dillon í mörg ár og æft með honum lengi. Ég hef leitt hann áfram. Ég mun þjálfa hann og ég ábyrgist að hann mun vinna, vonandi mætir Paul,“ sagði fyrrum UFC-meistarinn við Matchroom Boxing.

Vitaskuld ætlar Logan Paul ekki að sitja undir þessum ummælum McGregor án þess að leggja orð í belg. Hann birti innlegg á X þar sem hann skorar á McGregor í veðmáli og segist vera tilbúinn að leggja eina milljón dollara undir á eigin sigur.

„Sýndu nú hvað þú ert sjálfsöruggur. Pældu í því hvað þú gætir keypt mikið kókaín, dópistinn þinn. Þann 14. október, þá rústa ég ykkur báðum,“ sagði Paul í myndbandi á X en oft á tíðum hefur meint eiturlyfjaneysla McGregor verið til umræðu.

Bardagi Paul og Danis fer fram í Manchester áður en KSI mætir Tommy Fury í aðalbardaga kvöldsins.

Box



Fleiri fréttir

Sjá meira


×