Lífið

Euro­vision-sigur­vegarinn Toto Cutugno látinn

Kristinn Haukur Guðnason skrifar
Cutugno á tónleikum í Ungverjalandi árið 2016.
Cutugno á tónleikum í Ungverjalandi árið 2016. EPA

Salvatore „Toto“ Cutugno, sem vann Eurovision söngvakeppnina árið 1990, er látinn áttræður að aldri. Hann söng lagið „Insieme: 1992“ sem fjallar um sameinaða Evrópu.

Cutugno lést á þriðjudag á San Raffaele spítalanum í Mílanó. Banamein hans var krabbamein í blöðruhálskirtli sem hann hafði barist við um langt skeið.

Hann var fæddur í bænum Fosdinovo í Toskana héraði árið 1943 og byrjaði sinn tónlistarferil 19 ára gamall, sem trymbill í hljómsveitinni Toto e i Tati. Seinna stofnaði hann diskóbandið Albatros.

Með Albatros tók Cutugno fyrst þátt í Sanremo, tónlistarkeppninni þekktu, árið 1976 og hafnaði í þriðja sæti. En Sanremo hefur margsinnis verið notuð sem forkeppni Ítala í Eurovision.

Árið 1978 hóf Cutugno sólóferil sem gekk vel og árið 1980 vann hann Sanremo keppnina með laginu „Solo noi“. Hann náði hins vegar fyrst frægð út fyrir landsteinana árið 1983 með laginu „L´Italiano.“

Cutugno var raðkeppandi í Sanremo og söng alls 15 sinnum, síðast árið 2010.

Tapaði Sanremo en vann Eurovision

Árið 1990 bauðst Cutugno að taka þátt í Eurovision keppninni, sem haldin var í júgóslavnesku borginni Zagreb, eftir að sigurvegarar Sanremo neituðu að taka þátt. Cutugno hafði þá hafnað í öðru sæti með lagið „Insieme: 1992“ sem er óður til Evrópusamstarfsins. Maastricht sáttmáli Evrópusambandsins var undirritaður árið 1992 sem titill lagsins vísar til.

Skemmst er frá því að segja að Cutugno vann keppnina fyrir Ítalíu með 149 stigum á meðan Frakkland og Írland höfnuðu í öðru sæti með 132 og Ísland í fjórða sæti með 124. En það var Stjórnin sem söng „Eitt lag enn“ þetta ár.

Giorgia Meloni, forsætisráðherra Ítalíu, minntist Cutugno á samfélagsmiðlum eftir að andlátið var tilkynnt. „Far vel Toto Cutugno, sannur Ítali,“ sagði hún.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×