Innlent

Fannst látinn í klefa sínum á Litla Hrauni

Atli Ísleifsson skrifar
Ekki er talið að andlátið hafi borið að með saknæmum hætti.
Ekki er talið að andlátið hafi borið að með saknæmum hætti.

Fangi á Litla Hrauni fannst látinn í klefa sínum í gærmorgun. Greint er frá andlátinu á Facebook-síðu Afstöðu, félags fanga, í morgun, en Páll Winkel fangelsismálastjóri staðfestir andlátið í samtali við fréttastofu.

Í færslu Afstöðu segir að umræddur fangi hafi verið á þrítugsaldri. Páll segist ekki geta tjáð sig nánar um málið nema að vistmaður hafi fundist látinn í klefa sínum við opnun í gærmorgun og að lögregla rannsaki málið líkt og ávallt þegar vistmaður deyr innan veggja fangelsa. Það sé lögregla á Suðurlandi sem fari með rannsókn málsins, en Páll segir að ekkert bendi til að andlátið hafi borið að með saknæmum hætti.

Telja rétt að greina frá aðstæðum mannsins

Í færslu Afstöðu segir að aðstæður mannsins hafi verið með þeim hætti að Afstaða telji rétt að greina í aðalatriðum frá þeim „til þess að stjórnvöld vakni af værum blundi og geri eitthvað í fangelsismálum, ekki síst með tilliti til geðheilbrigðis þess fólks sem sætir frelsissviptingu.“

Segir að maðurinn hafi lokið afplánun fangelsisdóms að því marki að hann hafi verið laus á reynslulausn. Meginregla um skilyrði til reynslulausnar sé að viðkomandi brjóti ekki af sér á tímabilinu.

„Þar vandast málið því svo virðist sem oftar en ekki þurfi eingöngu ásökun til þess að reynslulausn sé rofin og viðkomandi er færður aftur til afplánunar.

Það að vera sviptur frelsi með þeim hætti, án dóms eða yfirleitt sönnunarfærslu, er gríðarlega þungbært og ætti fólk í þeirri stöðu að vera undir eftirliti sérfræðinga í geðheilbrigði og sálgæslu.

Afstaða hvetur til þess að fyrirkomulagið í kringum tilvik sem þessi verði skoðað í grunninn og úrbætur kynntar sem fyrst. Ekki gengur að fólk á reynslulausn njóti takmarkaðri réttinda en aðrir sem um frjálst höfuð strjúka,“ segir í færslunni.

Taka málið upp við dómsmálaráðherra

Ennfremur segir að Afstaða muni taka málið beint upp við dómsmálaráðherra en hvetji jafnframt félagsmálaráðherra og heilbrigðisráðherra að skoða hvað hægt sé að gera til að ekki tapist fleiri líf með þessum hætti. 

„Þá verða önnur sveitarfélög en Reykjavík að koma að borðinu því það er óásættanlegt að borgin þurfi ein að styðja við jaðarsetta hópa. Þau vita sem skömmina eiga og ættu sjá sóma sinn í því að eiga frumkvæði að samtali um þessi málefni.

Hugur stjórnarmanna Afstöðu er hjá aðstandendum hins látna sem og hjá samföngum og fangavörðum,“ segir í færslu Afstöðu,“ segir í færslu afstöðu.



Athugið. Vísir hvetur lesendur til að skiptast á skoðunum. Allar athugasemdir eru á ábyrgð þeirra er þær rita. Lesendur skulu halda sig við málefnalega og hófstillta umræðu og áskilur Vísir sér rétt til að fjarlægja ummæli og/eða umræðu sem fer út fyrir þau mörk. Vísir mun loka á aðgang þeirra sem tjá sig ekki undir eigin nafni eða gerast ítrekað brotlegir við ofangreindar umgengnisreglur.

Fleiri fréttir

Sjá meira


×