Innlent

Ó­sáttur með tal eftir­lits­mannsins í kaup­fé­laginu en sektin stendur

Atli Ísleifsson skrifar
Erfitt er að tryggja eftirlit með að allir nautgripir séu örugglega úti í átta vikur á sumri. Matvælastofnun telur sig þó geta fylgst með því hvort nautgripir séu yfir höfuð settir eitthvað út á bæjum.
Erfitt er að tryggja eftirlit með að allir nautgripir séu örugglega úti í átta vikur á sumri. Matvælastofnun telur sig þó geta fylgst með því hvort nautgripir séu yfir höfuð settir eitthvað út á bæjum. Vísir/Vilhelm

Nautgripabóndi á Vesturlandi þarf að greiða 350 þúsund króna stjórnvaldssekt vegna brota á reglum um útivist nautgripa eftir að matvælaráðuneytið staðfesti ákvörðun Matvælastofnunar. Bóndinn kærði málið til ráðuneytisins þar sem hann setti meðal annars út á eftirlit stofunarinnar og sér í lagi hegðun eftirlitsmanns Matvælastofnunar í Kaupfélagi Borgfirðinga.

Í úrskurðinum kemur fram að eftirlitsmaðurinn eigi að hafa hafið umræðu um eftirlitið við einn af bændum búsins og sagt frá því hversu mörg bú væru í skoðun í eftirlitinu, á hvaða bú væri nákvæmlega búið að fara þar að þau hafi verið tilkynnt og sömuleiðis hvaða bú myndu sleppa vegna þess að þar hafi verið ummerki eftir gripi fyrir utan fjós. 

Bóndinn taldi slíkt vera ófagleg vinnubrögð og ekki í samræmi vinnubrögð hjá stofnun eins og MAST sem færi með viðkvæm mál. Sagði hann samtalið hafa verið í viðurvist viðskiptavina og starfsmanna kaupfélagsins.

Játaði að hafa ekki tryggt útivistina

Matvælaráðuneytið staðfesti stjórnvaldsákvörðun Matvælastofnun um að sekta bóndann þar sem lágmarksútivist nautgripanna – átta vikur á sumri – hafi ekki verið uppfyllt á síðasta ári. Á bóndinn sömuleiðis að hafa játað að hafa ekki tryggt gripunum lögmælta útivist.

Varðandi hegðun eftirlitsmannsins í kaupfélaginu þá leit ráðuneytið svo á að ekki væri hægt að kæra það sem snúi að verklagi starfsmannsins. 

Slíkt teljist ekki stjórnvaldsákvörðun í skilningi stjórnsýslulaga heldur beri að beina slíku til forstjóra stofnunarinnar enda sé frekar um að ræða starfsmannamál.

Misráðið

Í svörum Matvælastofnunar kom fram að atvikið í kaupfélaginu hafi verið tveggja manna tal. 

„Eftirlitsmaðurinn þekkti viðkomandi og fékk spurningar og upplýsingar um fleiri aðila sem ekki hefðu uppfyllt skyldur um útivist nautgripa. Hafi hann með einhverjum hætti gefið í skyn að slíkt væri mögulega rétt, þá er ljóst að slíkt var misráðið.“

Af öllu virtu var það niðurstaða ráðuneytisins að Matvælastofnun hafi verið heimilt að leggja sektina á bóndann með því að vanrækja að tryggja nautgripum sínum lögmælta útivist á grónu landi sumarið 2023.



Athugið. Vísir hvetur lesendur til að skiptast á skoðunum. Allar athugasemdir eru á ábyrgð þeirra er þær rita. Lesendur skulu halda sig við málefnalega og hófstillta umræðu og áskilur Vísir sér rétt til að fjarlægja ummæli og/eða umræðu sem fer út fyrir þau mörk. Vísir mun loka á aðgang þeirra sem tjá sig ekki undir eigin nafni eða gerast ítrekað brotlegir við ofangreindar umgengnisreglur.

Fleiri fréttir

Sjá meira


×