Innlent

Gæslu­varð­hald yfir manninum fram­lengt

Árni Sæberg skrifar
Á myndbandsupptökum í Hamraborg mátti sjá tvo menn brjóta afturglugga verðmætaflutningabíls Öryggismiðstöðvarinnar að morgni mánudagsins 25. mars.
Á myndbandsupptökum í Hamraborg mátti sjá tvo menn brjóta afturglugga verðmætaflutningabíls Öryggismiðstöðvarinnar að morgni mánudagsins 25. mars. Stöð 2

Gæsluvarðhald yfir íslenskum karlmanni sem handtekinn var í tengslum við þjófnað á tuttugu til þrjátíu milljónum króna hefur verið framlengt.

Maðurinn fær að dúsa í gæsluvarðhaldi til föstudagsins 10. maí, að því er segir í tilkynningu frá Lögreglunni á höfuðborgarsvæðinu.

Maðurinn, sem er um fertugt, var handtekinn þann 30. apríl í tengslum við þjófnaðinn. Lögregla hefur haldið spilunum þétt að sér og ekkert gefið upp um hver grunuð aðild mannsins að þjófnaðinum er.

Heimildir fréttastofu herma að skömmu áður en maðurinn var handtekinn hafi litaðir peningaseðlar fundist í spilakössum á vegum Happdrættis Háskóla Íslands á dögunum. Maðurinn hafi verið handtekinn eftir að upptökur úr öryggismyndavélum staðarins sem hýsir spilakassana voru skoðaðar. 

Heimir Ríkarðsson, lögreglufulltrúi á lögreglustöðinni í Kópavogi, sem fer með rannsókn málsins, sagði ekkert vera hægt að gefa upp um gang rannsóknar málsins, þegar Vísir ræddi við hann í morgun.

Fréttin hefur verið uppfærð.


Tengdar fréttir

Tjá sig ekkert um gang Hamra­borgar­rann­sóknarinnar

Lögregla á höfuðborgarsvæðinu vill ekkert tjá sig um gang rannsóknarinnar á þjófnaðarmáli þar sem milli tuttugu til þrjátíu milljónum króna var stolið úr verðmætaflutningabíl í Hamraborg í Kópavogi í mars síðastliðinn.

Litaðir seðlar til skoðunar og málið á mjög viðkvæmu stigi

Lögregla heldur spilunum afar þétt að sér við rannsókn á þjófnaði á tuttugu til þrjátíu milljónum króna í Hamraborginni fyrir rúmum fimm vikum. Samkvæmt heimildum fréttastofu er grunur um að reynt hafi verið að koma lituðum peningum í umferð.



Athugið. Vísir hvetur lesendur til að skiptast á skoðunum. Allar athugasemdir eru á ábyrgð þeirra er þær rita. Lesendur skulu halda sig við málefnalega og hófstillta umræðu og áskilur Vísir sér rétt til að fjarlægja ummæli og/eða umræðu sem fer út fyrir þau mörk. Vísir mun loka á aðgang þeirra sem tjá sig ekki undir eigin nafni eða gerast ítrekað brotlegir við ofangreindar umgengnisreglur.

Fleiri fréttir

Sjá meira


×