Innlent

Ríkis­stjórn þurfi að gera meira í þágu vopna­hlés

Ólafur Björn Sverrisson skrifar
Sigmar Guðmundsson er þingmaður Viðreisnar.
Sigmar Guðmundsson er þingmaður Viðreisnar. Vísir/Vilhelm

Þingflokkur Viðreisnar hefur lagt fram þingsályktunartillögu þess efnis að utanríkisráðherra verði falið að fordæma tafarlaust þau mannréttindabrot sem framin hafa verið í Palestínu og kalla eftir vopnahléi á svæðinu. 

Auk þessa er lagt til að Alþingi álykti að forsætis- og utanríkisráðherra beiti sér á alþjóðavettvangi fyrir því að morð á almennum borgurum verði stöðvuð, að Hamas samtökin leysi alla gísla úr haldi tafarlaust og án skilyrða og að mannúðaraðstoð á Gasa-ströndinni verði aukin. 

Ástandið á Gasa heldur áfram að versna. Greint var frá því í dag að Ísraelsmenn hafi látið til skarar skríða í landamæraborginni Rafah, sem er sú eina sem Ísraelsher hefur ekki ráðist að fullu inn í. Heilbrigðisstarfsmenn í borginni sögðu þrjá hafa verið skotna til bana í skriðdrekaárás við mosku í morgun.

„Flutningsmenn tillögu þessarar telja að Alþingi Íslendinga og ríkisstjórnin þurfi að leggja enn meira af mörkum til að reyna að stuðla að vopnahléi og aukinni mannúðaraðstoð á Gaza-ströndinni,“ segir í tillögunni sem má lesa í heild sinni hér að neðan:

„Í fyrsta lagi er lagt til að Alþingi feli utanríkisráðherra að fordæma hvers konar mannréttindabrot sem hafi verið framin. Má þar nefna árásir sem er ekki beint að hernaðarlegum skotmörkum og aðgerðir sem fela í sér hóprefsingu almennra borgara. 

Í öðru lagi er lagt til að Alþingi feli utanríkisráðherra að kalla eftir tafarlausu vopnahléi milli hinna stríðandi fylkinga. Enn einar viðræður um vopnahlé runnu nýlega út í sandinn þegar Ísrael hafnaði sáttatillögu milligönguaðila frá Katar og Egyptalandi og hélt áfram fyrirætlunum sínum um árásir á Rafah-borg. Þrýstingur frá alþjóðasamfélaginu gegnir lykilhlutverki í því að fá stríðandi fylkingar til að fallast á vopnahlé. 

Í þriðja lagi er lagt til að Alþingi feli forsætisráðherra og utanríkisráðherra að beita sér fyrir aukinni mannúðaraðstoð á svæðinu, bæði með auknum stuðningi frá Íslandi og með því að greiða fyrir frekari stuðningi á grundvelli alþjóðasamstarfs, og sömuleiðis að þeir beiti sér fyrir því að morð á almennum borgurum verði stöðvuð og að Hamas-samtökin leysi alla gísla úr haldi tafarlaust og án skilyrða.

„Flutningsmenn telja mjög mikilvægt að Ísland standi staðfastlega með almennum borgurum í Ísrael og Palestínu. Í því ljósi eru árásir og morð á almennum borgurum fordæmd og mikilvægi þess að framfylgja alþjóðalögum og mannréttindum undirstrikað. Ísland á að gangast fyrir því á alþjóðavettvangi að lausn verði fundin á yfirstandandi átökum á þessu svæði sem byggist á tveimur sjálfstæðum ríkjum Ísraels og Palestínu.“



Athugið. Vísir hvetur lesendur til að skiptast á skoðunum. Allar athugasemdir eru á ábyrgð þeirra er þær rita. Lesendur skulu halda sig við málefnalega og hófstillta umræðu og áskilur Vísir sér rétt til að fjarlægja ummæli og/eða umræðu sem fer út fyrir þau mörk. Vísir mun loka á aðgang þeirra sem tjá sig ekki undir eigin nafni eða gerast ítrekað brotlegir við ofangreindar umgengnisreglur.

Fleiri fréttir

Sjá meira


×