Lífið

Ísrael skyndi­lega talið lík­legt til að vinna Euro­vision

Kolbeinn Tumi Daðason skrifar
Eden Golan, önnur frá hægri, ásamt teymi Ísraela fagna því að hafa tryggt sér sæti í úrslitum á laugardaginn.
Eden Golan, önnur frá hægri, ásamt teymi Ísraela fagna því að hafa tryggt sér sæti í úrslitum á laugardaginn. Getty/Jens Büttner

Hin tvítuga Eden Golan frá Ísrael er talin næstlíklegust til að standa uppi sem sigurvegari í Eurovision í ár með laginu Hurrycane. Ísrael rauk upp í veðbönkum í kvöld eftir að framlagið tryggði sér sæti á úrslitakvöldinu á laugardag.

Hávær áköll hafa verið undanfarna mánuði að meina Ísrael þátttöku í keppninni vegna árása þeirra á Palestínu undanfarna mánuði þar sem talið er að á fjórða tug þúsunda hafi fallið. Það virðist ekki hafa haft áhrif á stuðning Evrópubúa í kosningunni í kvöld. Ísrael var ein tíu þjóða sem tryggði sig í úrslitin þökk sé símakosningu áhorfenda.

Fyrir kvöldið var Ísrael talin áttunda líklegasta þjóðin til að vinna keppnina. Þegar þetta er skrifað er framlag Króata það eins sem talið er líklegra til sigurs en Ísrael. Lag Króata heitir Tim Tim Tagi Dim og er flutt af Marko Purisic sem notast við listamannsnafnið Baby lasagna, eða lasagnabarnið.

Tuttugu og sex lönd keppa í úrslitum á laugardagskvöldið. Hera Björk flutti framlag Íslands, Scared of heights, á fyrra undanúrslitakvöldinu á þriðjudag en komst ekki áfram í úrslitin.

Að neðan má sjá hvaða þjóðir veðbankar telja líklegastar til sigurs á laugardaginn.

Svona voru veðbankar á miðnætti aðfaranótt föstudagsins 10. maí.Eurovisionworld

Tengdar fréttir

Baulað á Ísrael sem flaug áfram í úrslitin

Nú liggur fyrir hvaða þjóðir keppa á úrslitakvöldi Eurovision í Malmö. Síðara undanúrslitakvöldið fór fram í kvöld þegar tíu þjóðir tryggðu sér sæti í úrslitunum. Þátttaka Ísraels þykir afar umdeild en sjónvarpsáhorfendur í Evrópu kusu Ísrael áfram í úrslitin.

Ríkisstjórn þurfi að gera meira í þágu vopnahlés

Þingflokkur Viðreisnar hefur lagt fram þingsályktunartillögu þess efnis að utanríkisráðherra verði falið að fordæma tafarlaust þau mannréttindabrot sem framin hafa verið í Palestínu og kalla eftir vopnahléi á svæðinu. 

Skotið á íbúa Rafah og heilbrigðiskerfi Gasa hrunið

Reyk lagði yfir landamæraborgina Rafah á Gasaströndinni og sprengingar heyrðust í morgun eftir að Ísraelsher gerði árás á austurhluta borgarinnar. Heilbrigðisstarfsmenn í borginni segja þrjá hafa verið skotna til bana í skriðdrekaárás við mosku í morgun.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×