Fótbolti

Casemiro komst ekki í Copa América-hóp Brassa

Ingvi Þór Sæmundsson skrifar
Casemiro hefur leikið 75 landsleiki fyrir Brasilíu og skorað sjö mörk.
Casemiro hefur leikið 75 landsleiki fyrir Brasilíu og skorað sjö mörk. getty/Alex Caparros

Miðjumaðurinn Casemiro hefur ekki átt sjö dagana sæla með Manchester United og til að bæta gráu ofan á svart var hann ekki valinn í hóp Brasilíu fyrir Copa América, Suður-Ameríkukeppnina, í sumar.

Casemiro hefur verið lykilmaður í brasilíska landsliðinu undanfarin ár og var meðal annars fyrirliði þess um tíma. 

Nýi landsliðsþjálfarinn Dorival Júnior hefur þó greinilega ekki verið ánægður með frammistöðu hans með United í vetur og valdi hann ekki í hóp Brassa fyrir Copa América í Bandaríkjunum í sumar.

Richarlison, leikmaður Tottenham, er heldur ekki í hópnum vegna meiðsla og sömu sögu er að segja af markahæsta leikmanni brasilíska landsliðsins frá upphafi, Neymar. Hann sleit krossband í október í fyrra.

Ungstirnið Endryck, sem fer frá Palmeiras til Real Madrid í sumar, er í hópnum en hann er aðeins sautján ára. 

Tveir leikmenn spútnikliðs tímabilsins í spænsku úrvalsdeildinni, Girona, eru í brasilíska hópnum. Þetta eru þeir Yan Couto og Sávio.

Brasilía er í riðli með Kosta Ríka, Paragvæ og Kólumbíu í Copa América.

Brasilíski hópurinn

Markverðir:

  • Alisson Becker (Liverpool)
  • Éderson (Manchester City) 
  • Bento (Athletico-PR)

Varnarmenn: 

  • Danilo (Juventus)
  • Yan Couto (Girona)
  • Guilherme Arana (Atlético-MG)
  • Wendell (FC Porto)
  • Beraldo (Paris Saint-Germain)
  • Marquinhos (Paris Saint-Germain)
  • Gabriel Magalhães (Arsenal)
  • Éder Militão (Real Madrid)

Miðjumenn: 

  • Andreas Pereira (Fulham)
  • Bruno Guimarães (Newcastle)
  • Douglas Luiz (Aston Villa)
  • João Gomes (Wolverhampton)
  • Lucas Paquetá (West Ham)

Framherjar:

  • Endrick (Palmeiras)
  • Gabriel Martinelli (Arsenal)
  • Evanilson (Porto)
  • Raphinha (Barcelona)
  • Rodrygo (Real Madrid)
  • Sávio (Girona)
  • Vinícius Júnior (Real Madrid)



Fleiri fréttir

Sjá meira


×