Óvenju bjartsýn spá Wow Air
Wow Air reiknar með því að afkoma félagsins batni um 95 prósent á síðari helmingi ársins miðað við sama tíma í fyrra en Icelandair er að spá 47 prósent samdrætti á sama tímabili. Spáin þykir mjög bjartsýn hjá Wow Air. Fjárfestar sem taka þátt í skuldabréfaútboði Wow Air muni einnig fá kauprétt að hlutafé í flugfélaginu þegar það verður skráð á markað.