Trúnaðarbrestur hjá sjálfstæðismönnum leiddi til slita Guðni Ágústsson, formaður Framsóknarflokksins, óskar sínum mönnum í borgarstjórn til hamingju með að hafa myndað nýjan meirihluta í borginni og segir á ferðinni nýja kynslóð úr öllum flokkum sem unnið geti að góðum verkum. Innlent 12. október 2007 16:01
Meira frelsi til skoðana í nýrri ríkisstjórn Formaður Samfylkingarinnar segir að stjórnarliðum leyfist nú að hafa skoðanir og skýtur þannig föstum skotum að fyrri ríkisstjórrn. Stjórnarliðar hafa enda tjáð sig frjálslega mál sem einhugur er ekki um í ríkisstjórninni. Innlent 24. september 2007 12:03
Félags- og tryggingamálanefnd fjalli um erlenda verkamenn Ögmundur Jónasson, fulltrúi Vinstri - grænna í félags- og tryggingamálanefnd, hefur óskað eftir því við formann nefndarinnar, Guðbjart Hannesson, Samfylkingunni, að nefndin verði kölluð saman hið fyrsta til þess að fjalla um erlenda verkamenn og réttarstöðu þeirra í ljósi fréttaflutnings undanfarna daga. Innlent 29. ágúst 2007 16:47
Íslendingar taka við rekstri Ratsjárstofnunar Íslendingar taka í dag við rekstri Ratsjárstofnunar af Bandaríkjamönnum og þar með rekstri íslenska loftvarnakerfisins. Er það í samræmi við samninga Íslendinga og Bandaríkjamanna sem gerðir voru við brotthvarf Bandaríkjahers frá Íslandi í fyrra. Innlent 15. ágúst 2007 07:45
Vill taka upp eðlileg samskipti við Palestínustjórn Ingibjörg Sólrún Gísladóttir utanríkisráðherra vill taka upp eðlileg samskipti við þjóðstjórn Palestínumanna og hyggst heimsækja Palestínu til að kanna hvernig Íslendingar geti beitt sér betur þar. Innlent 6. júní 2007 08:03
Ögmundur áfram þingflokksformaður Vinstri - grænna Ögmundur Jónasson verður þingflokssformaður Vinstri grænna á komandi kjörtímabili en þingflokkurinn skipti í dag með sér verkum. Varaformaður þingflokksins verður Katrín Jakobsdóttir og ritari er Kolbrún Halldórsdóttir. Innlent 29. maí 2007 14:40
Reykjavíkurborg tapar 4,3 milljarða króna Tap Reykjavíkurborgar á árinu 2006 nemur rúmum 4,3 milljöðrum króna þegar horft er til bæði A- og B-hluta rekstrarreiknings. Þetta kemur fram í tilkynningu til Kauphallar Íslands. Er þetta um sex milljörðum króna lakari afkoma en gert var ráð fyrir í í fjárhagsáætlun ársins 2006 Innlent 15. maí 2007 14:23
Íslendingar að huga að sínum vörnum sjálfir Íslendingar þurfa nú í auknum mæli að huga að sínum vörnum sjálfir. Þetta segir Valgerður Sverrisdóttir utanríkisráðherra. Innlent 8. maí 2007 20:13
Stjórnarþingmenn fari með hálfsannleik í málefnum aldraðra Formaður Landsambands eldri borgarara segir stjórnarþingmenn fara með hálfsannleik í málefnum aldraðra, rétt fyrir kosningar. Skattbyrði láglaunafólks hafi ekki minnkað og kaupmáttur ráðstöfunartekna hafi ekki aukist um 60-75 % hjá eldri borgurum, eins og stjórnarþingmenn haldi fram. Innlent 8. maí 2007 12:14
Sjálfstæðismenn heimsóttu Ölgerðina Málefni Barna og unglingingageðdeildar, fyrirhugað álver í Helguvík og mannekla á spítölum var meðal þess sem frambjóðendur Sjálfstæðisflokksins voru spurðir að þegar þeir heimsóttu starfsmenn Ölgerðar Egils Skallagrímssonar í dag. Innlent 26. apríl 2007 19:21
VG vill lækka lyfjaverð og komugjöld á spítala Taka þarf á mannekluvandanum á spítölunum og lækka þarf lyfjaverð og komugjöld á heilsugæslustöðvar og spítala hér á landi. Þetta lögðu frambjóðendur Vinstri grænna áherslu á í vinnustaðaheimsókn sinni á Landspítalanum í dag. Innlent 25. apríl 2007 18:57
Stóru flokkarnir einhuga í skólamálum Starfs- og iðnnám verður hafið til vegs og virðingar og jafnréttiskennsla tekin upp í skólum á næstu árum, ef marka má afstöðu allra flokka, nema Frjálslynda flokksins, til skólamála. Flokkarnir eru flestir sammála um að sporna þurfi við brottfalli íslenskra og erlendra nemenda úr framhaldsskólum. Innlent 24. apríl 2007 19:15
Segir Steingrím J. forhertan Steingrímur J. Sigfússon er forhertur stuðningsmaður landbúnaðarstefnu sem á stóran þátt í uppblæstri og gróðureyðingu. Þetta sagði Jón Baldvin Hannibalsson, fyrrverandi formaður Alþýðuflokksins, í harðri gagnrýni á formann Vinstri grænna í Silfri Egils í dag, og sagði Steingrím auk þess slá skjaldborg um okurvexti og okurverð. Innlent 22. apríl 2007 19:15
Listi Íslandshreyfingarinnar í Norðaustukjördæmi ákveðinn Hörður Ingólfsson, markaðsráðgjafi á Akureyri, mun skipa fyrsta sæti á lista Íslandshreyfingarinnar - lifandi lands í Norðausturkjördæmi. Búið er að raða á lista framboðsins í kjördæminu. Innlent 22. apríl 2007 17:43
Framsókn og Samfylking tapa fylgi í Suðurkjördæmi Framsóknarflokkurinn tapar einum þingmanni og Samfylkingin tveimur í Suðurkjördæmi samkvæmt könnun sem Capacent Gallup gerði fyrir Ríkissjónvarpið og Morgunblaðið í kjördæminu. Sjálfstæðisflokkurinn bætir við sig tveimur þingmönnum. Innlent 22. apríl 2007 14:36
Sendinefnd á leið til Kaliforníu Sólveig Pétursdóttir, forseti Alþingis, og eiginmaður hennar, Kristinn Björnsson, heimsækja næstu daga Kaliforníu í boði efri deildar fylkisþings Kaliforníu. Innlent 16. apríl 2007 15:52
Jón Baldvin ekki á lista hjá Íslandshreyfingunni Jón Baldvin Hannibalsson verður ekki á framboðslista hjá Íslandshreyfingunni í kosningunum í vor. Þetta staðhæfði Ómar Ragnarsson formaður flokksins í viðtali í Bítinu á Bylgjunni í morgun. Hægt er að hlusta á viðtalið í heild sinni hér á Vísi. Innlent 13. apríl 2007 08:49
Boðar nýja löggjöf um greiðsluaðlögun Félagsmálaráðherra hefur boðað nýja löggjöf um úrræði vegna greiðsluerfiðleika fólks og hefur skipað nefnd til undirbúa frumvarp. Jóhanna Sigurðardóttir þingmaður Samfylkingar segir sérkennilegt að boða til nýrrar löggjafar nú rétt fyrir kosningar, þar sem frumvarp sama efnis hefur legið fyrir á Alþingi í 10 ár og aldrei komist í gegn. Innlent 12. apríl 2007 18:57
Kjósendur neikvæðastir út í formann Samfylkingar Kjósendur annarra flokka en Samfylkingarinnar eru neikvæðastir út í Ingibjörgu Sólrúnu Gísladóttur af leiðtogum stjórnmálaflokkanna og eru kjósendur Sjálfstæðisflokksins sérstaklega neikvæðir út í hana. Stuðningsmenn flokkanna eru hins vegar flestir jákvæðir til Geirs H. Haarde formanns Sjálfstæðisflokksins. Innlent 8. apríl 2007 18:33
Hafnar samstarfi við flokka sem vilja ekki stóriðju Formaður Framsóknarflokksins segist hafna samstarfi við flokka sem vilja stoppa stóriðju og virðist þar með nánast hafna samstarfi við alla aðra en sjálfstæðismenn. Hann segir þó ekki tímabært að ákveða frekara samstarf. Þetta kemur fram í nýjum þætti, sem hefst í kvöld, strax á eftir Íslandi í dag. Alla næstu daga rifjum við upp úr stjórnmálasögu formanna stjórnmálaflokkanna. Innlent 2. apríl 2007 18:57
Samfylkingin vill huga að sprotafyrirtækjum Á blaðamannafundi í dag kynnti Samfylkingin nýja stefnumótun í atvinnumálum. Þær unnu til verðlauna á nýafstöðnu Sprotaþingi Samtaka sprotafyrirtækja og Samtaka iðnaðarins sem haldið var á föstudag. Þar greiddu fundarmenn atkvæði um tillögur stjórnmálaflokkanna og urðu tillögur Samfylkingarinnar í þremur efstu sætunum. Innlent 7. febrúar 2007 17:43
Vill að Margrét leiði lista í Reykjavík Margrét Sverrisdóttir íhugar að kæra framkvæmd kosninga á landsþingi Frjálslynda flokksins þar sem hún segir hafa ríkt glundroða. Guðjón Arnar Kristjánsson, formaður flokksins, vill að Margrét skipi fyrsta sæti flokksins í Reykjavík suður í næstu þingkostningum Innlent 28. janúar 2007 18:45
Margrét ætlar að kæra framkvæmd kosninga Margrét Sverrisdóttir ætlar sér að kæra framkvæmd varaformannskosninga í Frjálslynda flokknum. Þetta kom fram í hádegisfréttum Ríkisútvarpsins. Þar sagði hún enn fremur að það væri ekki spurning um hvort heldur hvar og hvernig hún legði fram kæruna. Innlent 28. janúar 2007 12:26
Þriðja umræða um RÚV-frumvarpið heldur áfram Þriðja umræða um Ríkisúvarpið ohf. hófst aftur nú laust fyrir hádegi eftir töluverðar deilur um tilhögun þinghalds á næstunni. Umræðan um frumvarpið hófst í gær og stóð til miðnættis og laust fyrir hádegi voru níu þingmenn á mælendaskrá varðandi frumvarpið. Innlent 16. janúar 2007 11:45
Spurt um fjárhagsleg samskipti borgar og Byrgisins Samfylkingin óskaði eftir upplýsingum um fjárhagsleg samskipti borgarinnar og Byrgisins á borgarráðsfundi í morgun, meðal annars hvernig einstaklingar sem þar hafa dvalið hafa verið studdir. Innlent 4. janúar 2007 13:56
Ríksráðsfundur á Bessastöðum Ríkisráðsfundur hófst á Bessastöðum klukkan 10.30 en hefð er fyrir því að forseti og ráðherrar hittist á þessum formlega fundi að morgni gamlársdags. Á fundinum eru bornar undir forseta til staðfestingar, eða öllu heldur endurstaðfestingar, ákvarðanir sem teknar hafa verið af ráðherrum eða Alþingi. Innlent 31. desember 2006 10:30
Sjálfstæðisflokkur samþykkir framboðslista í Reykjavíkurkjördæmum Framboðslistar Sjálfstæðisflokksins í Reykjavíkurkjördæmi suður og norður voru samþykktir á fundi í fulltrúaráði sjálfstæðisfélaganna í Reykjavík í dag. Geir H. Haarde, forsætisráðherra, verður í 1. sæti á framboðslista Sjálfstæðisflokksins í Reykjavíkurkjördæmi suður og Guðlaugur Þór Þórðarson, alþingismaður, verður í efsta sæti á lista flokksins í Reykjavík norður í alþingiskosningunum í maí á næsta ári. Innlent 21. desember 2006 18:32
Gert ráð fyrir 300 milljóna króna afgangi hjá Akureyrarbæ Akueyrarbær gerir ráð fyrir tæplega 300 milljóna króna rekstrarafgangi á næsta á samkvæmt fjárhagsáætlun bæjarins. Þetta kemur fram í tilkynningu frá bænum. Síðari umræða um fjárhagsáætluna verður á bæjarstjórnarfundi í dag og fram kemur í tilkynningu frá bænum að heildartekjur bæjarins verði tæpir 12,2 milljarðar króna en heildargjöld tæplega 11,9 milljarðar. Innlent 19. desember 2006 15:49
Vilja hefja frumhönnun á Öskjuhliðargöngum á næsta ári Borgarfulltrúar Samfylkingarinnar vilja að frumhönnun á Öskjuhliðargöngum og stokkalausn á Miklubraut verði hafin samhliða umhverfismati á Sundagöngum á næsta ári og að fasteignaskattar og holræsagjald verði lækkað. Innlent 18. desember 2006 14:31
Viðræður við Dani í varnarmálum hefjast í dag Viðræður íslenskra og danskra yfirvalda um samstarf í varnarmálum hefjast í Kaupmannahöfn í dag en sendinefnd frá Íslandi undir forystu Grétars Más Sigurðssonar, ráðuneytisstjóra í utanríkisráðuneytinu, er nú stödd þar. Innlent 18. desember 2006 09:36
Saksóknari Alþjóðlega sakamáladómstólsins vill handtaka Netanjahú og Hamas-liða Erlent