Fótbolti

Ung­verja­land og Serbía á EM

Runólfur Trausti Þórhallsson skrifar
Dominik Szoboszlai (til vinstri) var hetja Ungverjalands eins og svo oft áður.
Dominik Szoboszlai (til vinstri) var hetja Ungverjalands eins og svo oft áður. EPA-EFE/Tamas Kovacs

Ungverjaland og Serbía eru komin á Evrópumót karla í knattspyrnu sem fram fer í Þýskalandi sumarið 2024.

Undankeppnin fyrir EM 2024 er að taka enda en síðar í dag leikur Ísland gegn Portúgal ytra. Portúgal er búið að sigra riðilinn og Slóvakía tryggði sér annað sætið með sigri á Íslandi á dögunum. 

Strákarnir okkar eiga þó enn möguleika þökk sé umspili Þjóðadeildarinnar og hjálpar það íslenska liðinu að Serbía sé nú þegar búin að tryggja sér sæti á EM.

Ungverjaland lagði Svartfjallaland á heimavelli þrátt fyrir að gestirnir hafi komist yfir í fyrri hálfleik og staðan þegar liðin gengu til búningsherbergja hafi verið 0-1.

Í síðari hálfleik skoraði Dominik Szoboszlai tvö mörk á tveimur mínútum áður en Adam Nagy gulltryggði sigurinn í uppbótartíma, lokatölur 3-1.

Serbía og Búlgaría gerðu 2-2 jafntefli sem þýðir að Ungverjaland vinnur riðilinn án þess að tapa leik og Serbía endar í 2. sæti en Svartfjallaland lýkur leik í þriðja sæti.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×