Lífið

Mynd ársins af palestínskum flótta­manni

Lovísa Arnardóttir skrifar
Mynd ársins er af Yazan en á henni má sjá hann setja upp jólaljós í herberginu sínu í Mosfellsbæ. Myndina tók Kjartan Þorbjörnsson, Golli, fyrir Heimildina.
Mynd ársins er af Yazan en á henni má sjá hann setja upp jólaljós í herberginu sínu í Mosfellsbæ. Myndina tók Kjartan Þorbjörnsson, Golli, fyrir Heimildina. Mynd/Golli

Kjartan Þorbjörnsson og Kristinn Magnússon hlutu í dag verðlaun fyrir mynd ársins og fréttamynd ársins. Tilkynnt var um valið á viðburði í Ljósmyndasafni Reykjavíkur. Þar var á sama tíma opnuð ljósmyndasýning sem stendur opin til 18. maí. 

Á ljósmyndasýninguna Myndir ársins 2023 voru valdar 102 myndir frá 17 blaðaljósmyndurum af óháðri dómnefnd úr fjölda innsendra mynda. Á sýningunni eru myndirnar í sex flokkum sem eru fréttamyndir, myndir úr daglegu lífi, íþróttamyndir, portrettmyndir, umhverfismyndir, og myndaraðir. Í ár veitti dómnefndin verðlaun fyrir fréttamynd ársins og eina mynd úr fyrrnefndum flokkum var valin mynd ársins.

Umsagnir dómnefndar

Mynd ársins 202 3 er við fyrstu sýn einföld og kyrrlát. Hún er þó afar táknræn og hlaðin tilfinningu. Myndin sýnir Yazan, ungan flóttamann frá Gaza, þar sem hann skreytir tímabundið athvarf sitt hér á landi með jólaljósum og fána heimalands síns. Myndin kallar fram tilfinningar á borð við hryggð og samkennd og kemur vel til skila stolti hans yfir uppruna sínum og heimili, heimili sem nú er glatað. Höfundur myndar ársins er Kjartan Þorbjörnsson, eða Golli.

Fréttamynd ársins sýnir hina hliðina á einu stærsta fréttamáli ársins, jarðhræringunum á Reykjanesi. Myndin er frá samverustund fyrir Grindvíkinga í Hallgrímskirkju. Við sáum margar stórkostlegar myndir frá sjálfum eldunum og eyðileggingunni sem hræringarnar höfðu í för með sér, en sigurmyndin fangar með eftirminnilegum hætti mannlegu hliðina, hvernig samfélagið varð þéttara og fólk sýndi hvert öðru stuðning á erfiðum tíma. Höfundur fréttamyndar ársins er Kristinn Magnússon.

Fréttamynd ársins eftir Kristinn Magnússon á Morgunblaðinu. Mynd/Kristinn Magnússon

Fram kemur í tilkynningu um valið að dómnefndarstörf hafi farið fram í byrjun febrúar en í ár skipuðu dómnefndina Árni Torfason, Hrund Þórsdóttir, Snorri Gunnarsson og Andrea Bruce sem var formaður dómnefndar. Andrea er stríðsfréttaljósmyndari frá Bandaríkjunum og hefur meðal annars unnið í Írak og Palestínu fyrir tímarit eins og The New York Times og National Geographic. Hún hefur hlotið fjölda verðlauna fyrir myndir sínar.

Blaðaljósmyndarafélag Íslands var stofnað árið 1976 og starfar innan Blaðamannafélags Íslands. Sýningin Myndir ársins hefur verið haldin síðan 1979 og er ein fjölsóttasta ljósmyndasýningin landsins ár hvert. 

Stjórn Blaðaljósmyndarafélags Íslands í ár skipa Vilhelm Gunnarsson, sem jafnframt er formaður, Anton Brink, Eyþór Árnason, Hallur Karlsson, Hulda Margrét Óladóttir og Ragnhildur Aðalsteinsdóttir.


Tengdar fréttir

Vil­helm tók mynd ársins og frétta­mynd ársins

Ljósmyndari Vísis, Vilhelm Gunnarsson, hreppti tvö af sjö verðlaunum sem veitt voru í Ljósmyndasafni Reykjavíkur fyrir bestu myndir ársins 2021 í dag. Mynd Vilhelms af eldgosinu í Geldingadölum var valin mynd ársins og mynd hans af nýmyndaðri ríkisstjórn í roki og rigningu var valin fréttamynd ársins.

Blaðamyndir ársins 2020

Verðlaun voru afhent fyrir bestu myndir ársins í Ljósmyndasafni Reykjavíkur klukkan tvö í dag. Verðlaun voru veitt í sjö flokkum, auk myndar ársins.

Bestu myndir ársins 2019

Í dag voru afhent verðlaun fyrir bestu myndir ársins í Ljósmyndasafni Reykjavíkur.

Ljósmyndir ársins 2018

Sýning íslenskra blaðaljósmyndara opnaði í Smáralind í dag. Við opnunina voru ljósmyndurum veitt verðlaun fyrir bestu myndir ársins 2018.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×