Innlent

Björk varar við frum­varpi um sjókvíeldi

Rafn Ágúst Ragnarsson skrifar
Björk Guðmundsdóttir hefur áður gagnrýnt sjókvíeldi við strendur Íslands og einnig gert um það lag með frægri spænskri poppstjörnu.
Björk Guðmundsdóttir hefur áður gagnrýnt sjókvíeldi við strendur Íslands og einnig gert um það lag með frægri spænskri poppstjörnu. Getty

Björk Guðmundsdóttir varar við frumvarpi um lagareldi og hvetur fólk til að setja nafn sitt á undirskriftalista Steinunnar Ólínu Þorsteinsdóttur og skora á Alþingi að hafna frumvarpinu.

Í frumvarpi sem Bjarkey Olsen Gunnarsdóttir matvælaráðherra hefur lagt fram er kveðið á um að rekstrarleyfi til lagareldis verði ótímabundin. Hingað til hafa leyfin verið tímabundinn til 16 ára í senn með möguleika á framlengingu.

„Viljum við gefa auðmönnum firðina okkar?“ spyr Björk sig og fylgjendur sína. „Ef ekki skrifið undir.“

„Matvælaráðherra mælti á Alþingi í vikunni fyrir nýju frumvarpi um lagareldi þar sem gert er ráð fyrir að rekstrarleyfi laxeldisfyrirtækja í íslenskum fjörðum verði ótímabundið. Markmiðið er sagt eiga að bæta lagaramma um fiskeldi með aukinni áherslu á sjálfbærni og umhverfisvernd,“ skrifar Björk.

 Jón Kaldal, talsmaður Íslenska náttúruverndarsjóðsins, segir hins vegar að frumvarpið vinni gegn þessum hagsmunum,“ bætir Björk við og vísar til viðtals Ríkisútvarpsins við Jón Kaldal.

Rúmlega sextán hundruð manns hafa sett nafn sitt á lista Steinunnar Ólínu. Með söfnuninni er ætlunin að skora á Alþingi að hafna frumvarpinu sem undirskrifuð segja að „heimili mengandi iðnaðarframleiðslu með sjókvíeldi á viðkvæmustu svæðum við strendur Íslands undir litlu eftirliti “ og „hafi hagsmuni leyfishafa í fyrirrúmi á kostnað almannahagsmuna og náttúru landsins.“

Björk hefur áður lýst yfir mótstöðu sinni við sjókvíeldi og gaf meðal annars út lag í fyrra sem heitir Oral með spænsku poppstjörnunni Rosalíu sem fjallar um það.



Athugið. Vísir hvetur lesendur til að skiptast á skoðunum. Allar athugasemdir eru á ábyrgð þeirra er þær rita. Lesendur skulu halda sig við málefnalega og hófstillta umræðu og áskilur Vísir sér rétt til að fjarlægja ummæli og/eða umræðu sem fer út fyrir þau mörk. Vísir mun loka á aðgang þeirra sem tjá sig ekki undir eigin nafni eða gerast ítrekað brotlegir við ofangreindar umgengnisreglur.

Fleiri fréttir

Sjá meira


×