Skoðun

Í til­efni af Al­þjóð­lega safnadeginum

Dagrún Ósk Jónsdóttir skrifar

Nú nálgast Alþjóðlegi safnadagurinn óðfluga, en hann er haldinn hátíðlegur um allan heim þann 18. maí ár hvert. Á hverju ári er deginum valið nýtt þema, þar sem athygli er dregin að afmörkuðum þætti safnastarfs eða ólíkum hlutverkum safna. Þetta árið er þemað Söfn í þágu fræðslu og rannsókna, en hvoru tveggja eru stórir og mikilvægir þættir í safnastarfi.

Söfn og rannsóknir

Stór hluti safnastarfs er ósýnilegur og það má að vissu leyti segja að rannsóknir falli þar undir. Við sjáum þó afrakstur þessara rannsókna víða, en sýningar safna byggja gjarnan á mikilli rannsóknarvinnu. Það sama gildir um ákveðna viðburði og miðlun, útgáfu og heilmiklar rannsóknir fara fram í tengslum við skráningu á munum og myndum.

Það er mikilvægt að þær upplýsingar sem söfn setja fram byggi á traustum grunni, í heimi þar sem dynja sífellt á okkur meiri upplýsingar og fleiri falsfréttir. Samfélagsmiðlar og gervigreind hafa sífellt aukin áhrif og við verðum að geta treyst því sem fram kemur á söfnum. Það er líka mikilvægt að stunda rannsóknir á safnkostinum og skoða fortíðina með nýjum augum og frá nýjum sjónarhornum. Söfn eru að auki mikilvægir samstarfsaðilar rannsakenda og á söfnum má miðla niðurstöðum á aðgengilegan hátt til ólíkra hópa samfélagsins. Söfn hafa því mikla ábyrgð þegar kemur að framsetningu og miðlun upplýsinga.

Söfn í þágu fræðslu

Eitt meginhlutverk safna er að fræða, bæði með markvissu og öflugu fræðslustarfi þar sem söfn á Íslandi taka til dæmis á móti skólahópum og vinna með menntastofnunum. Þegar ég fer erlendis reyni ég líka gjarnan að heimsækja söfn til að læra meira um það land sem ég er að heimsækja, list, náttúru og menningu. Það sama á við um erlenda ferðamenn sem heimsækja Ísland.

Söfn kenna okkur líka ýmislegt um samfélagið okkar, söguna, listina, umhverfið og okkur sjálf. Það er dýrmætt. Þau gera það á áhugaverðan og skapandi hátt, vekja forvitni, auka víðsýni og efla sköpunargleði og gagnrýna hugsun.

Mikilvægi safna

Söfn eru gríðarlega mikilvægar rannsókna- og fræðslustofnanir um heim allan. Þau skapa nýja þekkingu sem byggir á traustum heimildum og ígrunduðum rannsóknum og miðla til ólíkra hópa. Söfn eru stofnanir sem við treystum og þess vegna er mikilvægt að styðja og efla við rannsóknir á söfnum.

Ég hvet öll til að heimsækja söfn á Alþjóðlega safnadaginn og þori að lofa að þið lærið eitthvað nýtt, áhugavert eða spennandi!



Athugið. Vísir hvetur lesendur til að skiptast á skoðunum. Allar athugasemdir eru á ábyrgð þeirra er þær rita. Lesendur skulu halda sig við málefnalega og hófstillta umræðu og áskilur Vísir sér rétt til að fjarlægja ummæli og/eða umræðu sem fer út fyrir þau mörk. Vísir mun loka á aðgang þeirra sem tjá sig ekki undir eigin nafni eða gerast ítrekað brotlegir við ofangreindar umgengnisreglur.

Skoðun

Sjá meira


×