Íslenski boltinn

Ey­steinn ráðinn fram­kvæmda­stjóri KSÍ

Valur Páll Eiríksson skrifar
Eysteinn Pétur Lárusson hefur verið í Kópavoginum í áratug en færir sig nú til Knattspyrnusambandsins.
Eysteinn Pétur Lárusson hefur verið í Kópavoginum í áratug en færir sig nú til Knattspyrnusambandsins.

Eysteinn Pétur Lárusson, framkvæmdastjóri Breiðabliks, mun taka við sömu stöðu hjá Knattspyrnusambandi Íslands í september næstkomandi. Jörundur Áki Sveinsson verður í stöðunni í millitíðinni.

Eysteinn hefur starfað hjá Breiðabliki í rúm tíu ár, fyrst sem framkvæmdastjóri knattspyrnudeildar en hefur síðustu ár verið framkvæmdastjóri aðalstjórnar félagsins. Hann var áður íþróttastjóri hjá Þrótti í Reykjavík og Hvöt á Blönduósi.

Klara Bjartmarz sagði upp störfum sem framkvæmdastjóri í lok febrúar síðastliðnum. Hún hafði verið framkvæmdastjóri sambandsins í tæpan áratug, frá 2015.

Jörundur Áki Sveinsson, yfirmaður knattspyrnusviðs sambandsins, hefur starfað sem framkvæmdastjóri þess frá uppsögn Klöru og mun gera það áfram út sumarið. Eysteinn tekur við starfinu 1. september.

„Það er mikill fengur fyrir KSÍ að fá Eystein til starfa. Hann er farsæll og reynslumikill framkvæmdastjóri sem þekkir rekstrarumhverfi knattspyrnunnar í þaula og reynsla hans sem fyrrverandi leikmaður, þjálfari og íþróttastjóri mun nýtast vel í þessu krefjandi starfi,” er haft eftir Þorvaldi Örlygssyni, formanni KSÍ, í tilkynningu sambandsins um ráðninguna.

„Það var afar ánægjulegt að sjá hversu margir hæfir einstaklingar sóttu um starf framkvæmdastjóra og ég vil nota tækifærið og þakka þeim fyrir áhugann um leið og ég býð Eystein formlega velkominn í hóp starfsfólks KSÍ,” er haft eftir Þorvaldi enn fremur.

„Ég er fyrst og fremst þakklátur fyrir það traust sem mér er sýnt með því að hafa orðið fyrir valinu og hlakka ég til að takast á við komandi verkefni innan knattspyrnuhreyfingarinnar. Ég mun kveðja Breiðablik með söknuði og miklu þakklæti til alls þess frábæra fólks sem kemur að félaginu með einum eða öðrum hætti,” segir Eysteinn Pétur.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×